This site uses cookies to provide you with a more responsive and personalised service. By using this site you agree to our use of cookies. Please read our cookie notice for more information on the cookies we use and how to delete or block them

Bókamerki Netfang Prentvæn síða

Leynd

Inngangur

Þessi yfirlýsing gildir fyrir Deloitte ehf. og samstarfsaðila sem stjórna þessari síðu og hafa aðgang að þeim upplýsingum sem berast í gegnum hana.

Ef þú ert gestur sem hefur kosið að skrá þig inn eða veita upplýsingar í gegnum síðuna, þá hefur samþykkt not á þeim upplýsingum í samræmi við þessa yfirlýsingu.  Vinsamlegast athugið að þessi síða hefur tengingar inn á aðrar síður, þar á meðal síður sem eru tengdir Deloitte ehf., þar sem ekki er farið eftir þeim vinnureglum sem rætt er um í þessari yfirlýsingu.

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þessa yfirlýsingu, vinsanlegast sendið okkur póst í gegnum "Hafið samband" síðuna.

 

Söfnun upplýsinga

Sem gestur, þá þarft þú ekki að gefa upp persónulegar upplýsingar til að geta skoðað síðuna.  Síðan safnar aðeins saman upplýsingum sem gestir gefa frá sér af fúsum og frjálsum vilja.  Þær upplýsingar geta verið s.s. nafn, starfstitill, nafn fyrirtækis, heimilisfang, netfang, símanúmer eða faxnúmer o.s.frv.

Við sækjumst ekki eftir viðkvæmum upplýsingum (t.d. um litarhátt, trúarbrögð, sakaskrá, kynhneigð eða heilsufar) frá gestum síðunnar.  Ef svo ber undir munum við fá samþykki gesta síðunnar til að safna saman slíkum upplýsingum.

Við notum svokallaða “cookie” til að auðvelda fólki að skoða síðuna.  Henni er eytt þegar fólk yfirgefur vefinn.  "Cookie" er lítil textaskrá sem vistast í vafranum.  Ef þú hefur áhyggjur af þessu þá getur þú stillt vafrann þinn þannig að hann komi í veg fyrir þetta.  Ef þú gerir það þá gæti, undir sumum kringumstæðum, vafrinn neitað að opna vissar síður á vefnum.  Til að breyta vafranum þínum til að koma í veg fyrir þetta getur þú farið á þessa síðu til að sjá hvernig þú getur breytt stillingunum á honum.

Til að gæta þess að síðunni sé vel stýrt, þá getum við safnað að okkur tilteknum tæknilegum upplýsingum um notendur s.s. hvernig vafra þeir eru að nota.  Þessar upplýsingar auðvelda okkur að sjá hvaða síður gestirnir skoða mest og hjálpar okkur að laga síðunni með það í huga.

 

Í hvað eru upplýsingarnar notaðar?

Persónulegar upplýsingar eru notaðar í mjög takmörkuðum mæli.  T.d. ef þú skráir þig inn á vefinn til að fá nýjustu og vönduðustu upplýsingarnar, gætum við notað þær upplýsingar til að búa til skráningu um þig til að auðvelda okkur að þjóna þér í framtíðinni.  Auk þess gætum við notað þessar upplýsingar til þess að auðvelda þér að nota síðuna okkar.  Auk þess gætum við notað þessar upplýsingar til að segja þér frá uppákomum, fundum eða fyrirlestrum sem þú gætir haft áhuga á. 

Þú getur á hvaða tíma sem er óskað eftir því að við hættum að senda þér tölvupóst um eitthvað sem þú hefur áður óskað eftir að fá sendan.


Gagnvart þriðja manni

Þótt við afhendum upplýsingar sem okkur berast í gegnum vefinn til aðila sem vinna úr þeim upplýsingum fyrir okkur þá afhendum við þessar upplýsingar ekki til þriðja aðila eða samsstarfsaðila okkar án þess að fá samþykki áður.

Persónulegar upplýsingar gætu verið sendar á milli skrifstofa Deloitte Touche Tohmatsu Limited erlendis eða til þriðja aðila til að vinna úr upplýsingunum.  Þetta þýðir að þessar upplýsingar geta farið til landa sem hafa aðrar reglur um varðveislu persónulegra upplýsinga en hérlendis.  Með því að veita upplýsingar í gegnum íslensku Deloitte síðuna þá er viðkomandi að gangast við þessu.

Þegar svo ber undir, er hægt að láta lögregluyfirvöld eða önnur stjórnvöld sem hafa heimild til þess, fá persónulegar upplýsingar ef það er nauðsynlegt eða æskilegt til að fylgja lögum og reglum.


Aðgangur að upplýsingum

Við erum staðráðin að veita gestum síðunnar auðveld aðgengi til að breyta sinni skráningu.  Þeir sem velja það að skrá sig inn á vefinn geta sótt sína skráningu, breytt henni og uppfært eða eytt henni á hvaða tíma sem er.  Þeir gestir sem eiga í erfiðleikum með að sækja skráninguna sína eða viljá fá afrit af þeim upplýsingum sem hún hefur að geyma geta haft samband í gegnum "Hafðu samband" síðuna.  Í öllum tilfellum munum við taka óskum um skráningarupplýsingar eða breytingu á þeim í samræmi við veitingu annara trúnaðarupplýsinga.

 

Upplýsingaleynd

Vefsíðan okkar hefur að geyma allar þær hefðbundnu tæknilegu varúðarráðstafanir til að halda þeim upplýsingum leyndum sem gestir síðunnar láta viljugir af hendi.

 

Breytingar á leynd upplýsinga

Deloitte ehf. áskilur sér rétt að breyta þessum skilmálum á hvaða tíma sem er.  Ekkert í þessari yfirlýsingu er samningur eða samþykki milli Deloitte hf. og við gesti vefsíðunnar eða þá sem láta upplýsingar af hendi á síðunni.


Leynd upplýsinga gagnvart börnum

Deloitte ehf. skilur mikilvægi þess að vernda einkalíf barna á netinu.  Þessi vefsíða er ekki hönnuð með börn yngri en 13 ára í huga.

 

Spurningar gesta

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi mál sem snúa að þessari yfirlýsingu þá ertu beðin um að senda okkur póst í gegnum "Hafðu samband" síðuna.