Hvað er spunnið í opinbera vefi 2011? |
Úttekt á opinberum vefjum ríkis og sveitarfélaga fór fram í fjórða skiptið 2011, og var að þessu sinni framkvæmd af Deloitte.
Alls voru skoðaðir 267 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga. Metið var samkvæmt gátlista hve vel vefirnir uppfylltu kröfur um aðgengi, nytsemi, innihald og þjónustu. Var úttekin með sama sniði og áður en efnisatriði hvers þáttar voru endurskoðuð í samræmi við breyttar kröfur og tækni. Opinberu vefirnir höfðu bætt sig í öllum þáttum frá síðustu úttekt nema þjónustu en skýrist það með breyttri matsaðferð.
Almennt er hægt að segja að opinberir vefir séu farnir að bæta sig að nýju og eru að hækka í samanburði við fyrri kannanir.
Allar upplýsingar um úttektina er hægt að nálgast á UT Vefnum, http://www.ut.is/konnun2011/
