This site uses cookies to provide you with a more responsive and personalised service. By using this site you agree to our use of cookies. Please read our cookie notice for more information on the cookies we use and how to delete or block them

Bókamerki Netfang Prentvæn síða

Alþjóðleg upplýsingaöryggiskönnun Deloitte meðal tæknifyrirtækja


Vista viðhengi  

Samkvæmt árlegri alþjóðlegri könnun ráðgjafafyrirtækisins Deloitte meðal  fyrirtækja í tæknigeira er ljóst að fyrirtæki eru að mestu leyti að halda áherslum varðandi  upplýsingaöryggismál sín óbreyttum milli ára meðan ógnir vegna upplýsingatækni hafa aukist og afleiðingar slíkra ógna verða sífellt alvarlegri. Þátttakendur voru 138 tæknifyrirtæki í 25 mismunandi löndum.  Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tók þátt í könnuninni.
Meira en helmingur (52%) fyrirtækja gáfu til kynna að fjármagn sem varið er í varnir gegn tækni- og netógnum væri minna en það ætti að vera eða væri að nálgast það sem það þyrfti að vera til að halda óbreyttri stöðu.

Meiri ytri kröfur og reglur

Tæpur þriðjungur (30%) fyrirtækja í könnuninni þurfti á einhvern hátt á árinu 2011 að bregðast við nýjum reglum eða vegna þrýstings frá eftirlitsaðilum. Er þetta í fyrsta skiptið sem verkefni af slíku tagi komast á topp fimm lista yfir verkefni tengd upplýsingaöryggi hjá fyrirtækjum í tæknigeira.  

Snjallsímar
Ein af stærstu ógnum sem fyrirtæki munu standa frammi fyrir á næsta ári samkvæmt könnuninni er notkun snjallsíma og annarra slíkra tækja s.s. spjaldtölva. Slík tæki hafa oft mikinn aðgang að kerfum og upplýsingum fyrirtækja en erfitt er að stjórna öryggi þeirra. Sérstaklega þar sem þau eru oft í eigu starfsmanna en ekki fyrirtækjanna sjálfra og því óljóst hver ber ábyrgð á öryggi þeirra. Notagildi þessarar nýju tækni er þó sífellt að aukast og augljóst að fyrirtæki þurfa að finna öruggar leiðir til að nýta þessa tækni.

Starfsfólk
Upplýsingakerfi og tæknilegar lausnir nægja ekki ein og sér til að viðhalda upplýsingaöryggi – þáttur starfsmanna er mikill.  Eitt af hverjum fimm fyrirtækjum í könnuninni nefndi mannleg mistök sem eina af megin ógnum sínum og 17% nefndu misnotkun starfsmanna á kerfum sem ógn.

Öryggi og tölvuský

Tölvuský voru nefnd af þriðjungi fyrirtækja sem sú tækninýjung sem mun hafa hvað mest áhrif á þau í nánustu framtíð. 60% fyrirtækja töldu þjónustuaðila (útvistun) vera annað hvort mikla ógn eða í meðallagi ógn við upplýsingaöryggi sitt en aðeins 31% gerðu þó einhverjar prófanir á öryggi þjónustuaðila sinna.

Fimm algengustu ógnirnar sem fyrirtæki sáu framundan fyrir árið 2012:

1. Upplýsingar á snjallsímum og spjaldtölvum(34%)
2. Öryggisbrestir hjá þjónustuaðilum(25%)
3. Mannleg mistök starfsmanna(20%)
4. Aukinn hraði á tækninýjungum(18%)
5. Misnotkun starfsmanna á kerfum og upplýsingum(17%)

Nánari upplýsingar veitir:

Tryggvi R. Jónsson, liðsstjóri, Áhættuþjónustu Deloitte hf. í síma 860-3177 eða tryggvi.jonsson@deloitte.is