Virkur verðbréfamarkaður - Forsendur |
Annar fundur í fundarröð Deloitte, Kauphallarinnar og Viðskiptaráðs Íslands um mikilvægi virks verðbréfamarkaðar á Íslandi var haldinn í Turninum við Smáratorg 15. maí s.l. Á þessum fundi var farið yfir forsendur virks verðbréfamarkaðar. Mjög góð mæting var á fundinn og hlýddi fullur salur á áhugaverð erindi fyrirlesara úr fjölbreyttri flóru atvinnulífsins.
Lokafundur fundarraðarinnar verður í haust, þar sem verður fjallað um þau tækifæri sem þar felast.
Dagskrá fundarins var á þessa leið:
Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland - Fjármögnun og framtíðin
Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri markaða og fjárstýringar hjá Landsbankanum - Áhrif gjaldeyrishafta á virkni verðbréfamarkaðar
Sigurður Páll Hauksson, endurskoðandi hjá Deloitte og formaður FLE - Breyttir tímar í endurskoðun
Gísli Hauksson, framkvæmdastjóri hjá GAMMA - Einsleitur verðbréfamarkaður frá hruni
Örn Valdimarsson, forstöðumaður greiningar hjá Eyrir Invest - Hvað vekur áhuga fjárfesta?
Knútur Þórhallsson, stjórnarformaður Deloitte setti fundinn og Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands sá um fundarstjórn.

Erindi fundarins er hægt að nálgast hér að ofan á pdf. formi.
Áhrif gjaldeyrishafta á virkni verðbréfamarkaðar - Hreiðar Bjarnason Landsbankinn