Rekstur sveitarfélaga |
Í kjölfar kosninga verða oft á tíðum breytingar á mönnun í sveitarstjórnum en í mörgum tilfellum er sama fólk að halda áfram. Því fylgir mikil ábyrgð að setjast í sveitarstjórn. Hvort sem þú ert að koma að sveitarstjórnarmálum í fyrsta skiptið eða ekki þá er alltaf þörf á að rifja upp nokkur veigamikil atriði tengd rekstri sveitarfélaga.
Deloitte hefur sérhæft sig í ráðgjöf og þjónustu fyrir sveitarfélög og er búið að skipuleggja fundi um allt land þessu tengdu. Á fundunum munu sérfræðingar okkar í sveitarstjórnarmálum fjalla um áhugaverð málefni sem mikilvægt er fyrir sveitarstjórnarfulltrúa að kynna sér og hafa þekkingu á.
Fundirnir voru haldnir á eftirtöldum stöðum:
| Reykjanesbær | 14. júní | kl. 16-18 | Ráin |
| Kópavogur | 15. júní | kl. 16-18 | Turninn, 20.hæð |
| Ólafsvík | 15. júní | kl. 16-18 | Hótel Ólafsvík |
| Ísafjörður | 14. júní | kl. 15-17 | Hótel Ísafjörður |
| Akureyri | 15. júní | kl. 16-18 | Hótel KEA |
| Egilsstaðir | 14. júní | kl. 16-18 | Hótel Hérað |
| Hella | 14. júní | kl. 16-18 | Árhús |
Meðal efnis sem fjallað var um var :
- Ábyrgð sveitarstjórnarmanna
- Lestur og greining ársreikninga
- Meðferð leigusamninga, lóða og lendna
- Virðisauka- og fjármagnstekjuskattur sveitarfélaga
- Fjármögnun og endurskipulagning á rekstri sveitarfélaga
Glærur frá fundunum er hægt að nálgast hér að neðan á pdf formi.

Þjónusta við sveitarfélög