Fyrningarleiðin |
Að beiðni forsvarasmanna LÍÚ birtir Deloitte áhrif svokallaðar fyrningarleiðar (innköllun aflaheimilda í áföngum), sem er í stefnuskrá ríkisstjórnarinnar og hefur verið í þjóðfélagsumræðunni undanfarið, á rekstur og efnahag fyrirtækja í greininni.
Á grundvelli gagna frá 28 félögum sem ráða yfir um 61% af heildarþorskígildum sjávarútvegs á Íslandi og opinberra gagna s.s. frá Hagstofu Íslands, Ríkisskattstjóra, Fiskistofu, Fjármálaráðuneytinu og Seðlabanka Íslands hefur Deloitte lagt fram mat á stöðu greinarinnar í dag og áhrifum fyrningarleiðarinnar á framtíðarrekstur starfandi sjávarútvegsfélaga.
Skýrsluna er hægt að nálgast hér að neðan sem pdf skjal.

Fyrningarleiðin